Föstudagsflipp

Nettur fílingur fór um mig eftir vinnu eins og alltaf þegar maður fattar að brennivíni er hægt að gera skil um miðjan dag.
Hringdi ég med de samme í skonsa sem ég veit ekki til að hafi sagt nei við áfengi síðan það fór fyrst innum hans varir.
Við hittumst í mosó, hann býr þar hjá systur sinni. Skagastrætó var duglegur og mætti 7 mínútum fyrr en strætó 15 lagði af stað. Sem gaf mér tækifæri á að hlaupa í ríkið í mosó. Drukkum við svo nokkra í leið 15 niðrá Hlemm.

Við löbbuðum svo niðrí austurstræti og keyptum meira í ríkinu þar, og skoðuðum helstu kennileiti Reykjavíkur. Enda sannir túristar.


Það var auðséð að við nálguðumst Bandaríska sendiráðið þegar kyrstæðir lögreglubílar voru á öllum götuhornum. Ég svipaðist eftir Birni Bjarna og hinum hvitflipunum. En þeir kunna víst ekkert að slást svo það skipti engu máli.Sá tvær áberandi stúlkur með athyglisþörf á háu plani og sá engan tilgang í að taka myndir af þeim. Enda vissi ég að Símon Birgis og hinir vitlesingarnir á fjölmiðlunum myndu bara sína myndir af þeim. Eins og þar færu fram hinir eginlegu talsmenn andstæðinga heraðgerða. 2 skræbóttar lesbíur af 700 mans, og það var eina myndefnið í öllum blöðum Íslands.

Ég og skonsi fundum 2 Hafnfirðinga sem voru starfandi í árdaga UJ þegar ég nennti að mæta á fundi. Sátum á ölstofunni og hlógum dátt og rifjuðum upp einhverja ræðu sem ég hélt og ég man enn ekki hvað ég sagði og samt muna flestir aðrir eftir henni.Svo fór ég bara uppá skaga enda hafði ég lofað að kveðja siggu gúmm.
Strætó gæinn var hinn vænsti og keyrði mig upp að dyrum hjá Ölöfu
